Argus í tímans rás
Auglýsingastofan Argus var stofnuð í nóvember 1967 af grafísku hönnuðunum Hilmari Sigurðssyni og Þresti Magnússyni og er því elsta auglýsingastofa Íslands um leið og hún er yngsta – og í raun eina markaðsstofa landsins!
Fljótlega var Argus áberandi í viðskiptalífinu með leiðandi viðskiptavini í sinni grein eins og Landsbanka Íslands, Eimskip, Velti og Happdrætti Háskólans. Á þeim tíma sem liðinn er frá stofnun Argusar hafa miklar breytingar átt sér stað í íslensku viðskiptalífi og hefur stofan kappkostað að laga starf sitt að þeim.
Á síðari árum hefur það færst í vöxt að fyrirtæki einbeiti sér að kjarnastarfsemi sinni en kaupi þá þjónustu sem ekki snýr beint að henni. Í þeim takti varð sú breyting í starfi Argusar sem átti sér stað í kjölfar eigendaskipta 2004. Þá breyttist Argus úr hefðbundinni auglýsingastofu í alhliða markaðsstofu. Þrátt fyrir þær breytingar slær auglýsingadeild stofunnar hvergi af kröfum um faglega og skapandi vinnu. Raunar nýtur hún þess að geta gert enn betur vegna hinna nánu tengsla við annað markaðsstarf innan Argusar.